.. " Það gleðst allur krakkakórinn
er kemur jólasnjórinn
og æskan fær aldrei nóg"
Já ég er greinilega hluti af æskunni ennþá, sem er nú aldeilis gott. Allavega þrái ég meiri snjó og mikið meiri snjó. Ég er hinn klassíski Íslendingur sem langar í betra veður og meiri hita 10 mánuði ársins. Í kringum jólamánuðinn er ég alveg í hina áttina. Nú langar mér að vinda mér í úlpu og hlýjar buxur og byggja snjókall útí garði. Gæti mögulega spilað inní að blessuð prófin eru byrjuð.... Talndi um þau þá er eitt kvikindi búið og ekki nema fjögur eftir. Byrjaði á inngangi að stjórnun sem gekk fínt en það er reyndar einn af mínum uppáhalds áföngum. Næsta mánudag er góðvinur minn ... stærðfræðin sem ég held alltaf að ég sé laus við en birtist einhvern veginn aftur og aftur... En þá er bara skal, vil, ætla !!
Ég er búin að skreyta allt hátt og lágt, það er búið að fela tréskömmina enda væri hún annars líklega orðin sigin til dauða á sjálfum jólum. Svo það er kannski ekki það versta. Jólin eru komin á Tjarnargötuna en líka á Kexið :
Elsku krúttlega Kexið, séð bakvið.
Þetta er bakgarðurinn, hrikalega mikið skreytt sem er aldeilis að mínu skapi.
Móttakan |
Heitt súkkulaði með piparmyntudropum |
Peysurnar í desember eru alveg málið í dag :) |
Og smá Tjarnó :
Ég náði að hemja mig með aðventuljósið þar til á sunnudaginn. Enda óskrifuð regla. |
Jóló, svo skemmir ekki fyrir að það er kökulykt af kertinu svo það er eins og maður sé alltaf nýbúinn að baka! |
Og svo það nýjasta í boði elsku bestu Söstrene Grene sem ég gjörsamlega elska að koma inní.
Það er alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt þar og svo er verðið alveg hrikalega sanngjarnt.
Krúttkúlur sem jafnvel ég get sett saman á ekki löngum tíma.
Svo hrikalega kósý og jóló hjá þér maður.. Þetta er til fyrirmyndar í prófunum. Guggugatan verður að bíða með það að verða Jóló fram eftir próf.
ReplyDelete