Wednesday, October 24, 2012

HalloWeen 2012

Þið getið rétt ýmindað ykkur hvað skipulags, föndurs og skreytingaróðri manneskju finnst um HalloWeen.........

Ég ætla að halda uppá Hrekkjavökuna á Tjarnargötunni fyrir stelpurnar og ég er nokkuð viss um það eigi eftir að verða gott kvöld.

Smá fróðleiksmoli í boði Vísindarvefsins;

"" Hrekkjavaka eða eins og hún nefnist á enskri tungu Halloween er stytting á nafninu All Hallows Evening sem er kvöldið fyrir 31. október, vakan fyrir Allraheilagramessu sem er tileinkuð píslarvottum kirkjunnar. Hefð myndaðist fyrir því að á HalloWeen væru brennandi kertum komið fyrir í útskornum næpum á Írlandi og Skotlanfi tíðkaðist einnig að kveikja í bálköstum. Einnig fóru börn og fullorðnir á milli húsa, gjarnan klædd í alls kyns búninga.

Þegar Skotar og Írar fluttu til Ameríku á 19. öld fluttist Halloween hátíðin með þeim. Í Bandaríkjunum uxu aftur á móti grasker sem voru mun stærri en næpurnar og auðveldari að skera út og tóku þar af leiðandi við. ""

Það er svo sem gaman að vita þetta en persónulega finnst mér ekki endilega skipta máli hvaðan hátíðin er eins og fólk vill gjarnan benda á að við séum að herma eftir Bandaríkjamönnum og eigum ekki að vera að taka upp þennan sið og annan. Gott og blessað með þá skoðun en ég vill meina að þegar fólk kemur saman og hefur gaman þá skiptir ekki máli hvers lensk "ástæðan" sé. Og hananú!

Ég allavega er byrjuð að plana veisluna á laugardaginn, búin að þræða ýmsar föndurbúðir, Tiger, Sostrene grone og búningarbúðr ásamt því að leita á vefnum góða. Ekki það að ég fæ hjálp við skreytingarnar svo að ég vona að þetta verði bara töff!!

Ég viðurkenni að ég kveið svolítið fyrir að fara í búðirnar sökum þess að í fyrra eyddi ég HalloWeen úti þar sem það gjörsamlega flæddi HalloWeen skreytingum og búningum út úr búðunum. En það kom mér skemmtilega á óvart hvað er til mikið í búðunum hérna og meira að segja á Laugarveginum má sjá skreytingar í búðargluggum núna í vikunni.

Ég mæli með að allir skelli sér í búning og geri eitthvað skemmtilegt með vinum eða fjölskyldu.



- Líf.



Monday, October 22, 2012

Mánudags

Langþráður mánudagurinn er mættur, jæja líklega ekki langþráður en það er alltaf gott að klára þá.
Helgin var rosalega notaleg, við Raggi héldum uppá daginn okkar á laugardaginn. Dagurinn hófst reyndar á lærdómi en áður en við vissum af vorum við á leið í sveitasæluna. Við vorum nú ekkert með rosalegt plan, keyrðum Þingvallarleiðina á Laugarvatn og stoppuðum á hinum ýmsu stöðum til að skoða okkur um, þar á meðal Laugarvatnshella. 


Já það er kominn vetur!

Í Laugarvatnshellum





Eftir það lá leið okkar í Fontana Spa sem er staðsett á Laugarvatni, það var mjög notalegt. 

"" Náttúruböðin sem nú hafa verið reist bjóða fyrst og fremst uppá að upplifa hina einstöku GUFU beint yfir gufuhvernum fræga sem heimamenn og gestir hafa nýtt til heilsubaða að minnsta kosti síðan 1929. Auk þess er unnt að baða sig í heilsubaðvatni í þrískiptri baðlaug, dvelja í heitri saununni, ganga í volgum sandinum eða slaka á í fallegum garðinum. Jafnframt gefur dvöl í böðunum ávalt tækifæri til að skynja hina síbreytilegu íslensku veðráttu og áðurnefndrar fjallasýnar. ""



Myndir af síðunni fontana.is



Eftir öll þessi ósköp lá leið okkar á Argentínu þar sem við fengum dásamlegan mat. Humarhalar, nautalund og súkkulaðikaka í destert.


Ofur glöð með nýja pelsinn.


Klár í mat

Súkkulaðikakan á Argentínu,
MJÖG góð!

Ritz, camenbert og sultan hennar Stensu frænku.
Of góð blanda!

Ég er mjög hrifin af Argentínu og ekki síður hrifin af 2fyrir1 tilboðinu þeirra. Það er nefninlega þannig að við Raggi erum mjög virk á síðum eins og hópkaup, 2fyrir1, aha  og fleiri í svipuðum dúr. Það er auðvelt að detta niður á góða díla sem henta námsmönnum afar vel. Þá getur maður leyft sér öðru hverju að gera eitthvað sérstakt án þess að tæma budduna alveg.

http://www.2fyrir1.is/
http://www.hopkaup.is/
http://www.aha.is/


Mæli með að þið kíkið á þessar síður!!

En vikan er eins pakkbókuð og mögulegt er, þannig finnst mér þær skemmtilegastar. Það styttist í Halloween, Airwaves og fleira svo það er nóg framundan.

En meira um það síðar.

Góðan mánudag!

- Líf

Saturday, October 20, 2012

20/10


Í Laugarvatnshellum

Að elska er að elska
Að elska er að vera elskuð
Að elska er að þræta
Að elska er að sættast
Að elska er að gefa
Að elska er að þiggja
Að elska er að vera sammála
Að elska er að vera ósammála
Að elska er að hjálpast að
Að elska er að hlæja saman
Að elska er að spjalla saman
Að elska er að hanga saman
Að elska er að hlusta
Að elska er að virða
Að elska er að treysta
Að elska er erfitt
Að elska er yndislegt
Að elska er vinna
Að elska eru forréttindi 

Í dag erum við Raggi búin að vera saman í 8 ár. 8 ár eru 2920 dagar. 8 ár er langur tími.

Samband er vinna sem gefur hámarkslaun ef hún er unnin vel.

Ég er svo heppin að hafa eytt þessum tíma með strák sem ég er bæði hrikalega skotin en er í senn minn besti vinur.

- Líf


Friday, October 19, 2012

Föstudags.

Önnur vika senn á enda, önnur helgi að ganga í garð.

Vikan hefur einkennst af lærdómi eins og svo oft áður þessa önnina. Það er líka bara ágætt, nú er svona miðjan á önninni sem þýðir að ég er hálfnuð. Sem er skemmtilegt en ógnvekjandi í senn þar sem það er stuttur tími eftir en mikið sem á eftir að gera. Nú er allt brjálað í verkefnaskilum, miðannaprófum og kennararnir velja yfirleitt sömu vikuna til að smella öllu inn. En það þýðir bara að maður þarf að spýta í lófana til að halda við.

Ég er orðin rosalega spennt fyrir jólunum, ég hef örugglega minnst á að einhvern tímann áður en þetta er minn allra allra uppáhalds tími. Ég fæ hlakk í magann í hvert einasta skiptið sem einhver segir jól eða ég sé eitthvað sem tengist jólunum. Þess vegna fékk ég mikið hlakk í magann síðustu helgi sem við sambýlismaðurinn eyddum á Skaganesinu góða.

Í skírnarveislunni hjá þeim Friðþóri og Ingu þar sem gullmolinn þeirra Elías Íbsenn fékk nafnið sitt var á boðstólnum þessi dásamlega humarsúpa. En humarsúpa er alltaf forréttur á Skagabrautinni á aðfangadagskvöld, svo vorum við Raggi í pössunarstörfum um kvöldið og fórum í mat til tengdó og fengum þar Bayonne skinku, brúnaðar kartöflur og baunir. Það kom yfir mann þvílíki jólafílingurinn!!

Smá systranús


Í hjólatúr þar sem mín kæra systir tilkynnti mér það að foreldrar Glanna Glæps hétu Dardý og GölliSölla. Það er ekkert lítið gaman að vera hlustandi stundum þegar mín fer að semja sögur.

Spilað á Bjarkagrundinni eftir kvöldmáltíðina góðu.

Ekki skemmdi fyrir þegar við Raggi fórum í Ikea eitt kvöldið í vikunni og það var jólatré og jólaskraut í hverju horni. Raggi sannfærði mig um að það yrði nú eitthvað eftir í desember og ég var eins og lítið barn í dótabúð með fullt fang af jólaskrauti sem ég ætlaði að kaupa en endaði á að skila!! En ég ákvað nú að það væri líka gaman að eiga þessa skemmtiferð inni.

Eitt af jólatjánum fallegu.

Ég fer bráðum að verða alveg óþolandi bloggari sem bloggar endalaust um jólahefðir og jólaskreytingar en ég ætla að spara mig örlítið.

Gærvköldið lét bíða eftir sér með eftirvæntingu. Ég fékk stelpurnar mínar í langþráða heimsókn á Tjarnargötunni og við áttum notalega kvöldstund sem endaði í miðbæ Reykjavíkur í smá pöbbarölt. Við ákváðum að hafa þetta ansi einfalt og fínt og ég hafði heyrt um veislubakka frá Saffran og þeir ollu sko engum vonbrigðum. Kjúklingur, lax, tígrisrækjur og toscana skinka ásamat alls kyns grænmeti og mismunandi sósum. Þetta kom klárt á bakka svo eina sem var eftir var að njóta, og við áttum ekki í vandræðum með það. Svo var það kalt bús, ritz kex, ostar, notaleg tónlist og svo bara spjallað. Ekki slæmt kvöld það.

Áður en Daisy kom, svo styttist líka í USA skvísurnar og að við verðum allar
sameinaðar á ný :)

Snilldarlausn (meira á = http://saffran.is/veisluthjonusta/samlokubakkar)

Ég var einnig í smá föndurstússi í vikunni, ég dett öðru hverju í þann pakkann og hef alltaf gaman að. Þó ég verði seint talin sleipasti föndrarinn þá finnst mér alltaf skemmtilegt að prufa mig áfram í þeim efnum.


Ég var orðin rosalega þreytt á að horfa alltaf á tengingarnar á ísskápnum og örbylgjuofninum frá stofunni svo ég notaði efnisbút sem átti og gerði skilrúm. Þetta er reyndar tímabundin lausn en draumurinn er að taka striga sem er jafn stór, mála einhvern fjanda og setja á milli. Það er verkefni komandi vikna!!


Ég keypti pappastafi í Tiger sem konan í búðinni ráðlagði mér að mála ekki, sökum þess að pappinn myndi líklega draga í sig málninu. Ég fór auðvitað beint heim, náði í afgangsmálninguna frá því að við máluðum vegginn og smellti á stafina. Það var minnsta málið og svo var stöfunum skellt uppí hillu þegar þeir höfðu þornað. Raggi gubbaði næstum úr væmni en hann verður bara að lifa við þessi ósköp. 



Útkoman er tileinkuð deginum okkar Ragga sem er á morgun 20. október og þá munum við gera eitthvað voða skemmtilegt saman. Hlakka til!

Ég vona að þið eigið allra bestu helgina, takk fyrir að lesa!

Ykkar
Líf.

Tuesday, October 16, 2012

Þriðjudagur


Myndavélar

Mig dreymir um að eignast professional vél einn daginn. Mér þykir rosalega gaman að taka alls kyns myndir og "vinna" þær, er kannski enginn snillingur orðinn en æfingin skapar meistarann.

Canon eða Nikon, bæði rosalega flottar græjur : 








Þriðjudagar eru skemmtilegir, þá er rólegt í skólanum og ég fer að vinna alltaf um 4 á Kexinu. Legg yfirleitt fyrr á stað, skoða mig um í búðunum á Laugarveginum, sérstaklega þegar veðrið er stillt og gott eins og í dag. Það er rosalega hressandi, verst hvað manni langar nú oft í margt í búðunum.

Eigiði góðan dag

XX
Líf

Friday, October 12, 2012

Helgi

Á leið heim úr skólanum

Þingvellir

Akureyri

Kvöldgöngutúr í vikunni.

Haustið er alltaf jafn heillandi og litirnir eru engu líkir. Ég fer oft göngutúr um göturnar og ég er alltaf að verða hrifnari af miðbænum, finnst hann rosalega sjarmerandi.

Nú er komin helgi eftir langa viku, ég er eitthvað óvenju fegin. Á morgun er stórt próf í skólanum og það leggst á mann, en ég vona svo sannarlega að það gangi vel.

Maður getur verið svo spes stundum, þegar ég verð stressuð eða er eitthvað off þá finnst mér rosalega gott að nota bakstur til að dreifa huganum. Það er eitthvað við það, líklega því að ég get verið algjör klaufi og þarf því að einbeita mér all svakalega svo að það endi ekki allt í vandræðum. Þegar ég var úti, hafði ég mun meiri tíma til að baka og gerði mikið af því. Ég hef saknað þess og fann í dag hvað það getur verið gott fyrir hugann.



Lengi vel dreymdi mig um eigin uppskriftabók, ég gerði ekki annað en að fletta mömmubók og ég man ennþá hvað er á hverri blaðsíðu. Þegar ég flutti að heiman sá ég mér ekki annað fært en að búa mér til mína eigin og mér þykir sérstaklega vænt um hana. Ég er með alls kyns uppskriftir frá fólkinu í kringum mig.

Til dæmis mömmu-kanilsnúðar eru þeir allra bestu, stundum vakna ég á næturnar og er að hugsa um þá. Svona næstum en þið skiljið hvað ég meina! Þeir eru brjálaðislega óhollir og góðir eftir því. Ég hef bakað þá mjög reglulega í eitthver 2-3 ár. Ég vildi deila með ykkur uppskriftinni, svona fyrst það er nú að koma helgi.

Mömmu-Snúðar:
150 g smjör
1 1/2 dl sykur
800 g hveiti
2 msk þurrger
1 tsk salt
1 msk kardimommudropar

Leysið gerið upp í volgri mjólkinni. Bætið salti, sykri og smjöri út í og helmingnum af hveitinu. Hrærið vel, stráið hinum helmingnum af hveitinu yfir og látið hefast á hlýjum stað í 30-40 mínútur.

Deigið er flatt út, smjöri penslað yfir og að lokum kanilsykur.

Snúðarnir eru bakaðir í ofni á 225 gráðum í 15-20 mínútur.



Uppskriftin er stór en gerir 25-30 snúða eftir stærð, það er rosalega gott að frysta 3 og 3 saman í poka og eiga alltaf "nýbakað" og fínt eftir skóla.

Þessir snúðar minna mann á gömlu dagana og að það muni allt verða í lagi og öll sár grói á endanum.

Fyrst ég var á annað borð byrjuð þá gerði ég líka bananabrauð, líka vegna þess að ég átti banana sem voru að verða brúnir. Ég var reyndar aldrei þessu vant ekki með neina uppskrift en ég hef oft notað uppskrift af cafésigrun en í þetta sinn átti ég ekki allt í þá uppskrift. Hráefnin voru því einhvern veginn svona;

Bananabrauð:
250 g hveiti
100 g sykur
1 egg
3 bananar
1 tsk kanill
1 tsk salt
Smá sýróp
Haframjöli stráð yfir

Útkoman og lyktin á heimilinu er dásamleg


Gaman að segja frá því að sýrópið er frá Bandaríkjunum, nánar tiltekið Alabama frá Brönsstað sem nefnist Cracker Barrel. Ekta suðurríkjastaður en mjög góður. Námsmennirnir tóku auðvitað sýróp með heim til minningar. Aðeins hitað upp og það er ljúffengt hvort sem er á pönnukökur eða í bananabrauð.



Njótið vel, eigið góðan bleikan föstudag og helgi :)



- Líf.

Sunday, October 7, 2012

Akureyrarferð

Alveg hreint yndisleg helgi að baki.

Akureyri skartaði sínu fegursta eins og von var á og félagsskapurinn var til fyrirmyndar. 

Smá ferðasaga í máli & myndum ;

Til að fá sem allra mest fyrir okkar snúð ákváðum við að taka hluta af Borgarfjarðarbrúnni með okkur
til minningar.

Gestgjafnarnir á Duggusælu tóku á móti okkur með þessu líka dýrindis hlaðborði þar sem meðal annars var boðið uppá humarsalat, reykta gæsabringu og reykta hreindýratungu. Í eftirrétt var borin á borðið einn sá albesti ís sem mín tunga og tönn hafa komist í snertingu við. Ísinn bar nafn sitt af Hallormsstaðarskógi þar sem hindberin sem framleiddu bragðið voru týnd.


 Laugardagurinn hófst í dásamlegu veðri og húsráðandinn undirbúið morgunverðarhlaðborð. Eftir það vorum við teknar í skoðunarferð um svæðið.



Hér fyrir ofan má sjá Nonnahús en við gengum einmitt Nonnaleið í göngutúrnum okkar.

Heilsað uppá Nonna

Kirkjugarðurinn


Föngulegar húsmæður í sólinni





Akureyri er einn af mínum uppáhalds stöðum, hér má sjá brekkuna sem skíðamenn
stunduðu á árum áður. Fryst hafði í vikunni eins og sjá má á götunni.


Leið okkar lá í Zumba þar sem Sibba nokkur tók okkur í gleðidans og það sem var hlegið og skemmt sér! Ég var næstum búin að gleyma hvað það er gaman í Zumba :)
Eftirmálinn var ekki amarlegur, skálað í hvítu í heita potti á þakinu á húsinu.






Góður matur gerir allt betra. Hér má sjá nokkra af réttum okkar sem við fengum á Hofinu. Hofið er menningarhús Norðlendinga og svíkur engann!

Að snæðingi í Hofinu eftir góða og sveitta líkamsrækt.

Næst lá leiðin í mollið :

Sáttar með kjarakaup í Imperial

Hópmynd
 Sannar húsmæður skilja engan útundan og búðirnar eru sko engin undantekning!!

Kvöldmaturinn á laugardagskvöldið sveik engann enda Gunnlaugur meistarkokkur á ferðinni í annað sinn, gæsabringur með öllu tilheyrandi. Meðal annars dásamlegri villisveppasósu sem ég finn næstum bragðið af ef ég hugsa nógu mikið um hana. Hindberjaísinn varð aftur fyrir valinu og ég sannfærðist um jólaísinn á Tjarnargötunni.

Næst var það að kíkja á næturlífið.

Klár í fjörið

Við skelltum okkur á Græna Hattinn þar sem Todmobile léku fyrir DANSI !! :)


Nýbúin að fremja eitthvað mjög alvarlegt?!

Rakst alveg óvænt á tvær Hollywood stjörnur!


EllaOfurGella


Allar saman velhressar!

Svona nokkurn veginn var þetta bara!
Sungið í lyftunni
Þetta var eiginlega alltof mikil snilld. Að borða góðan mat, hreyfa sig örlítið, slappa af og fyrst og síðast hlæja er eitthvað manni veitir hreinlega ekki af! Ég átti ofurgóða helgi með ofurskemmtilegum skísum hjá ofurfrábærum gestgjöfum. Það er alltaf eintóm sæla að heimsækja frænku fyrir norðan og Akureyri tekur einhvern veginn alltaf jafn vel á móti manni og fólkið svo vinalegt og frábært.

Ég tala nú ekki um hvað ég virkilega fatta hvað Húsmæðraorlof merkir. Aðeins að kúpla sig út frá litlum krúttboltum og hafa gaman. Ég var rosalega heppin að fá að vera með!

Takk fyrir mig!!
Þið MaxMiklu snillingar!

- Líf