Tuesday, August 21, 2012

Má ég sofna og vakna einhverstaðar .......

Umkringd þessum elskum ;
















Ein sú allra flottasta í bransanum!
- NastyGal

http://www.nastygal.com/

Monday, August 20, 2012

Hvar er Jónas?

Skemmti mér konunglega á tónleikum með þessum skemmtilegu piltum :

http://www.mbl.is/folk/frettir/2012/08/17/hitar_upp_fyrir_sjalfan_sig/

Þeir eignuðu sér einnig karokí svið í Berlín eins og sjá má hér;

http://www.youtube.com/watch?v=cAUT_STSpCM

Ótrúlega flott og algört must að fylgjast með þeim í framtíðinni !!

- Líf

Hvar annar staðar enn á Kex?

Monday, August 13, 2012

OneLove

Uppáhalds leikstjórinn minn !



Woody Allen


"Woody Allen er fæddur 1. desember 1935 sem Allen Stewart Königsberg. Hann er bandarískur leikari og leikstjóri. Allen skrifar og leikstýrir eigin kvikmyndum  og hefur leikið í meirihluta þeirra. Hann leitar innblásturs í bókmenntum, heimspeki og sálfræði.

Fyrri myndir hans eru nánast ástarjátninging frá honum til fæðingarborgar sinnar, New York. 

Í nýrri myndum hans má þó sjá hvernig hann hefur fært sig yfir til Evrópu og eru þær myndir ekki aðeins lýsing á skrautlegu mannlífinu heldur einnig sýning á töfrum borganna þriggja (Barcelona, París og Róm) 

- Vicky Christina Barcelona
- Midnight in Paris
- Match point
- You will meet a tall dark stranger

Þetta eru svona uppáhalds myndirnar mínar með honum en ég hef reyndar ekki séð allar. 




Þessi bloggfærsla er gerð í tilefni þess að í kvöld fórum við á nýjustu mynd hans "To Rome with love" en mér fannst hún æðisleg. 

Myndirnar hans eiga það sameiginlegt að vera rosalega mannlegar en um leið hnyttnar og skemmtilegar. Svo ekki sé talað um æðislegt umhverfi og góða leikara!




Mæli með þessum kappa og hans myndum!

- Líf

Sunday, August 12, 2012

101

Aldeilis langt síðan síðast :)

Þar sem ég tími nú ekki að skilja við bloggið mitt þá ætla ég að halda áfram með ýmislegt sem mér finnst áhugavert og einhverjar fréttir líka! Vona að þið hafið gaman að..

Margt gerst síðan síðast, við erum flutt í kjallaraíbúð í hundrað og einum og kunnum afar vel við okkur. Ég er byrjuð að vinna á Kex hostel, sem er snilldarstaður alveg hreint. Nánast bara annar heimur ef ég leyfi mér að taka svo sterkt til orða! Sjón er allavega sögu ríkari.

Smá skemmtilegt dundur úr íbúðinni en það er eitthvað það skemmtilegasta sem ég veit að sansast í íbúðinni, þræða Góða hirðinn og fleiri búðir í þeim dúr. Alltaf eitthvað sem maður finnur skemmtilegt og nothægt.


Gamall skápur sem múttan gaf okkur og við Raggi máluðum hvítan! 

Málningarvinna í hámarki, best að vera með 1-2 vinnumenn
í málinu!


Mér þykir voða vænt um útvarpið sem prýðir eldhúsvegginn.

Bara smá smá :)

- Líf


Sunday, July 15, 2012

Íslensk náttúra

Útilega um helgina með stórfjölskyldunni, byrjuðum við Seljalandsfoss og héldum áfram að Klaustri. Frábær ferð þar sem íslensk náttúra skartaði sínu fegursta eins og við var að búast. Alveg merkilegt hvað maður á margt eftir í þeim málum en ég nýt þess alltaf í botn að skoða mig um á klakanum góða, ég tala nú ekki um í góðum félagsskap.

Ætla að leyfa nokkrum velvöldum myndum að fylgja með sem ég var að dunda mér að taka í ferðinni ;
Njótið vel :)









Kvöldsólin





Tuesday, July 10, 2012

Fastir liðir eins og venjulega

Óvissuferðin sem haldin er árlega hjá okkur vinkonunum. Við skiptumst á, litir hópar innan stóra vinahópsins að skipuleggja fyrir hinar. Í þetta sinn voru það þær stöllur Katla, Þórdís, Lilja og Eyrún sem voru að verki og tókst það ekkert smá vel upp hjá þeim :)
Við mælum með þessu fyrir alla vinahópa sem ekki hafa prófað :-)

Írskir dagar voru stórkostlega skemmtilegir eins og alltaf, það er eitthvað við það þegar fólk sameinast um eitt markmið, að hafa gaman! Ekki skemmdi fyrir hvað bærinn var fallegur og mikið skreyttur.

Smá Óvissuferðarsyrpa;



-- 2009 --



-- 2010 -- 



-- 2011 -- 

winners!

-- 2012 --

Wednesday, July 4, 2012

Elsku Skaginn ...


Nokkrar myndir eftir gott kvöldrölt í góða veðrinu í tilefni þess að uppáhalds Írskir dagar hefjast á morgun og standa yfir alla helgina :) Ég er ekki búin að bíða nema í 1 ár eftir þessu .......










Ein í lokin í tilefni af uppáhalds helginni sem er senn að ganga í garð. 
Ég mana ykkur til að taka rúnt niður í miðbæ, hann er orðinn vel skreyttur núna og á eftir að verða enn flottari !